Hægt er að fá hliðarborð fyrir bæði Terraborðið (60x60cm) og stóra grillborðið (120x60cm). Morsø hliðarborðið stækkar vinnusvæðið um 30 cm. Þannig munu tvær hliðarplötur sem settar eru á sitthvora hlið Morsø Terra borðs tvöfalda upprunalega lengd þess – og verður þá jafnstórt og stóra grillborðið.
Hliðarborðið er á hjörum og auðvelt að fella það niður þegar það er ekki í notkun.
Hliðarborðið er á hjörum og auðvelt að fella það niður þegar það er ekki í notkun.
Þegar Morsø hliðarborðinu er komið fyrir þarf að færa járnhandföng borðsins innundir borðið þannig að það geti haldið hlutverki sínu sem áhaldagrind.
Efni: Pólýhúðað stál (sama efni og er í borðunum)