
Hér eru barnavörur sem þú merkir sjálf/ur með nafni, mynd eða texta. Nestisbox, vatnsflöskur, barnatöskur, merkimiðar á töskur, barnasvuntur, töfrapúðaver og púsl í nokkrum stærðum, allt hannað fyrir krakka sem vilja eiga sína eigin hluti.
Merkt með nafni barnsins
Nestisbox og flaska með nafni týnast síður í skólanum eða leikskólanum, og taska með uppáhaldsmynd barnsins verður strax í uppáhaldi. Þú hannar vöruna á vefnum, setur inn mynd eða texta og sérð útkomuna strax áður en þú pantar.
Skemmtileg gjafahugmynd
Töfrapúðaver með pallíettum sem skipta um lit, púsl með fjölskyldumynd eða barnasvunta fyrir litla bakarann eru persónulegar gjafir í afmæli, í skóinn eða í jólapakkann. Flestar vörur eru prentaðar og merktar hjá okkur í Reykjavík og eru yfirleitt tilbúnar samdægurs eða næsta dag, en í annríki getur það tekið 1 til 4 daga.
Fyrir leikskólann og frístundina
Merkimiði á töskuna og flaska með nafni eru líka sniðug í leikskólann, á sundæfingar og í sumarbúðirnar, þar sem margir eiga eins hluti og auðvelt er að ruglast.
Sjá líka barnavörur með fyndnum texta, nestisbox og skólavörur til að merkja.









































































